Um Ístex

Íslenskur textíliðnaður hf (Ístex hf) er ullarvinnslufyrirtæki sem vinnur að því að skapa sem mest verðmæti úr íslenskri ull.

Markmið Ístex er að framleiða hágæða vörur úr íslenskri ull fyrir þá sem kjósa náttúrulegar, sjálfbærar og umhverfisvænar vörur.

Fyrirtækið rekur ullarþvottarstöð á Blönduósi og spuna- og bandverksmiðju í Mosfellsbæ. Ullarvinnsla í Mosfellsbæ hefur staðið samfleytt frá árinu 1896, áður undir nafninu Álafoss. Ístex hf tók við starfseminni árið 1991. Bændur og tengdir aðilar eiga yfir 90% hlut í Ístex.

Ístex kaupir ull beint frá bændum en félagið þvær og meðhöndlar um 99% af allri íslenskri ull. Ístex miðar að því að lágmarka umhverfisáhrif sín. Þvegin ull frá Blönduósi er vottuð STANDARD 100 by OEKO-TEX®. 

Ístex framleiðir handprjónaband úr íslenskri ull og má þar nefna Álafosslopa, Einbandi, Jöklalopa, Léttlopa og Plötulopa. Ístex gefur út handprjónabækur með fjölbreyttri hönnun. Þá framleiðir Ístex ullarteppi og hefur hafið framleiðslu á sængum úr íslenskri ull.

Vörur Ístex eru seldar víða um heim. Frekari upplýsingar má finna á heimasíðunum okkar.

Fyrirspurn

Ef einhverjar spurningar kunna að vakna um ull og ullarvinnslu ekki hika við að hafa samband.

  • Ullarþvottastöð Blönduósi; sími 483-4290, farsími 892-5670, netfang ull@istex.is
  • Skrifstofa Ístex í Mosfellsbæ; sími 566-6300, netfang istex@istex.is