Upplýsingar um ullarviðskipti

Ístex kaupir einungis haust- og vetrarrúna ull af lifandi fé frá framleiðendum á tímabilinu frá 1. nóvember til 31. maí ár hvert. Þeir sem telja sig vera með vinnsluhæfa ull geta skilað henni eftir 1. nóvember.

Ístex dreifir sínum eigin ullarpokum um allt land. Ullarpokar þessir eru eign Ístex og einungis ætlaðir í ullarviðskipti hjá Ístex. Það er á ábyrgð ullarframleiðenda sem taka við ullarpokum að pokar séu notaðir rétt, örugglega og skili sig að lokum á söfnunarstað. Ístex áskilur sér rétt að rukka að minnsta kosti 1500 kr fyrir hvern poka sem ekki er notaður í þennan tilgang.

Ull sem rúin er á tímabilinu frá 1. júní til 30. september er yfirleitt ekki vinnsluhæf og er því ekki tekið við henni.  Það skal tekið skal fram að þófnar tvíreyfur og ull með snoði utan á reyfi er óvinnsluhæf með öllu.

Verklag

Flokka þarf ullina eftir lit og gæðum (sjá flokkun og ullargalla). Eftir að ullin hefur verið flokkuð, pökkuð og vegin þurfa ullarinnleggjendur að skrá flokkun ullarinnar. Að skráningu lokinni þarf að prenta út skráningarseðil, gjarnan í tvíriti og skal annað eintakið afhent flutningsaðila. Ef ekki eru tök á að skrá ullina á netinu skal skrá á blað upplýsingar um  magn í hvern flokk, pokafjölda og heildarþunga. Þar skal einnig koma fram hvort og þá hvenær ullin var skráð í gegnum síma. Blað með ofangreindum upplýsingum skal fylgja þeim sendingum sem ekki fylgir útprentaður skráningarseðill. Sama vinnulag gildir ef ullin er afhent beint í þvottastöð.

Það er mikilvægt að ullin er skráð inn á Ullartorg sem fyrst eftir rúning. Þannig skilast greiðslur hraðar til bænda og auðveldara er að skipuleggja ullarsöfnun.

Skrá verður á poka

  • kennitölu
  • ullarflokk
  • þyngd
  • heildarpokafjölda í hverri sendingu

Gæta skal þess að hafa ekki meira en 20-25 kg í poka!

Upplýsingar um skráningu

Skráð á Ullartorgi.

Ef ekki eru tök á að skrá á Ullartorgi þarf að koma upplýsingum um flokkun til Ístex:

Ullarþvottastöð Blönduósi; sími 483-4290, farsími 892-5670 og netfang ull@istex.is

Skrifstofa Ístex í Mosfellsbæ; sími 566-6302 og netfang istex@istex.is

Uppgjör

Ull sem skráð er á tímabilinu 1.11.2025 til 31.1.2026 er greidd eftir 31.05.2026.

Ull sem skráð er á tímabilinu 1.2.2026 til 31.5.2026 er greidd eftir 31.8.2026.

Annað

Frekari upplýsingar um ull og Lopa er hægt að finna á…