Ullarmat
Þessari síðu er ætlað að hjálpa til við að auka gæði og verðmæti íslensku ullarinnar. Ull er hægt að nýta á margvíslegan hátt. Mismunandi flokkar eru notaðir í mismunandi verkefni. Því er mikilvægt að rétt sé staðið að flokkun. Leitast er eftir því að ullin sé flokkuð í sem einsleytasta flokka og unnt er, þannig nýtast eiginleikar hráefnisins best.